Tökum saman þátt í orkuskiptunum
Þjónustan okkar -
Sólspor sérhæfir sig í sjálfbærum orkulausnum fyrir framtíðina.
Við flytjum inn, seljum og setjum upp umhverfisvænar lausnir sem byggja á endurnýjanlegri orku – með sérstakri áherslu á sólarorku.
Þjónustan okkar nær til heimila, sumarbústaða, fyrirtækja og opinberra stofnana um land allt.
Við bjóðum upp á alhliða ráðgjöf, hönnun og uppsetningu á kerfum sem gera viðskiptavinum kleift að draga úr orkunotkun, minnka kolefnisspor og auka sjálfstæði í orkumálum. Lausnir okkar eru sniðnar að aðstæðum hvers og eins og byggja á nýjustu tækni á sviði sólarorku og tengdra orkulinda.
Við trúum því að orkan til framtíðar sé sjálfbær – og við hjálpum þér að taka fyrstu skrefin.