Sólspor

Sólarorka er hreinn og endurnýjanlegur orkugjafi – lausn framtíðar sem er þegar orðinn raunveruleiki fyrir heimili, bústaði og fyrirtæki um allt land. 

Sólspor aðstoðar viðskiptavini við að nýta sólarorku til rafmagnsframleiðslu með snjöllum og sjálfbærum lausnum.

Með því að setja upp sólarsellukerfi geturðu dregið stórlega úr rafmagnskostnaði, aukið sjálfstæði frá raforkukerfinu – og minnkað kolefnisspor þitt.

Það er mikilvægt að taka það fram að dagsbirta er líka að búa til rafmagn með sólarsellum, það þarf ekki beina sól. 

Sólarsellur nýta orku sólarinnar til að framleiða rafmagn í íslenskri náttúru.
 

Orkan geymist – og nýtist þegar þú þarft á henni að halda

Sólarorka myndast þegar sólarljósið skín á sólarsellur (dagsbirta), en til að tryggja stöðugan aðgang að rafmagni – líka á kvöldin eða þegar skýjað er – þarf að geyma orkuna.

Því notum við orkugeymslulausnir (ESS) sem safna raforkunni í rafhlöður fyrir síðari notkun.

Rafhlöðugeymslur geyma orku fyrir kvöld og skýjaða daga.

🔋 HyxiPower – ESS All-in-One lausn

Sólspor býður upp á HyxiPower ESS all-in-one, snjalla og heildstæða lausn sem sameinar:

  • Sólarsellu inverter – breytir sólarorku í rafmagn fyrir notkun
  • Rafhlöðugeymslu – til að geyma umframorku
  • Orkustjórnunarkerfi (EMS) – tryggir hámarks nýtni og afköst

Þetta er sveigjanlegt og öflugt kerfi sem hentar jafnt fyrir heimili sem stærri byggingar – með sjálfvirkri stillingu sem aðlagar sig að þörfum notenda.

HyxiPower ESS – snjöll og öflug all-in-one rafhlöðulausn.

☀️ LONGi – Sólarsellur í fremstu röð

Sólspor treystir á gæði frá LONGi, einum leiðandi framleiðanda heims í sólarorkulausnum. LONGi leggur áherslu á nýsköpun og sjálfbærni og hefur sett ný viðmið í afköstum og endingu sólarsella.

LONGi Hi-MO X10 – háþróaðar og endingargóðar sólarsellur.

🌞 Hi-MO X10 – Þróaðasta tækni LONGi

Við bjóðum LONGi Hi-MO X10 sólarsellur, sem byggja á nýjustu tækni:

  • Mikið ljósnám – meira rafmagn, líka við lélega birtu, þarf ekki beint sólarljós
  • Langlíf hönnun – framúrskarandi ending og áreiðanleiki
  • Fyrir öll veðurskilyrði – hannað fyrir íslenskar aðstæður

Með Hi-MO X10 tryggir þú þér hámarks orkuvinnslu frá sólinni – á hagkvæman og ábyrgan hátt.

Vertu hluti af orkuskiptunum

Hvort sem þú ert að byggja upp sjálfbært heimili, rafvæða bústaðinn eða gera fyrirtækið þitt vistvænna – þá er græn orka með Sólspor raunhæf og skynsöm fjárfesting í framtíðinni.

Hafðu samband – og við finnum réttu lausnina fyrir þig.