Sólspor

Um okkur

Sólspor var stofnað af þremur reyndum og áhugasömum einstaklingum: Bjarna Þorkel Jónssyni, rafvirkja, Hjálmari Gylfasyni, rafeindavirkja, og Ragnari Þór Ragnarssyni, viðskiptafræðingi. Þeir sameinuðu krafta sína undir einum hatti með það markmið að stuðla að sjálfbærni og grænni orku á Íslandi.

Stofnendurnir eru sannfærðir um að sjálfbær orkunýting sé lykillinn að framtíðinni, og með fagmennsku og metnaði vilja þeir hjálpa heimilum, fyrirtækjum og stofnunum um allt land að taka skrefin í átt að vistvænni og hagkvæmari orkulausnum.

 

Með áherslu á nýjustu tækni í sólarorku og orkugeymslu er Sólspor samstarfsaðili sem leggur sig fram við að skapa umhverfisvænar lausnir sem skila raunverulegum ávinningi til viðskiptavina.

Bjarni

Bjarni er rafvirki að mennt og hefur unnið lengi við ýmisskonar uppsetningar.

Hjálmar

Hjálmar er rafeindavirki að mennt og hefur unnið lengi við sitt fag.

Ragnar

Ragnar er viðskiptafræðingur að mennt og með meistaragráðu í forystu og stjórnun.  Hann hefur unnið mikið við tækni í gegnum tíðina.